Ég var látinn hafa skóflu og settur inn í risastóra skemmu með einhverjum gömlum kalli með það skakkar tennur að hann hefði getað stungið úr mér augað ef hann hefði brosað, sem hann gerði blessunarlega ekki. Inn í þessari risaskemmu voru færibönd út um allt hreinlega og þau voru að mylja niður eitthvað rusl, sem að ég vil ekki vita hvað var af því það sem ég átti að gera var að skófla því sem féll niður á gólfið upp í aðra skóflu (á gröfu), ekkert erfitt en málið var samt að það var alveg rosalegur gegnumtrekkur þarna í skemmunni og þetta rusl sem að maður var að skófla var þurrt og um leið og maður hreyfði eitthvað við því fór það bara beint upp í augun, nefið, eyrun, munninn og rassgatið á mér!
Gaman að segja frá því að ég hjólaði beint upp á vikarstofuna og sagði að þetta væri staður sem að ég ætlaði aldrei aftur á.....og því var bara furðu vel tekið. Meira að segja skemmtilegra að segja frá því að það var hringt í mig á meðan ég var að blogga þetta og mér boðin vinna á fimmtudaginn og var lofað að það væri betra en ÚRGANGUR OG ENDURVINNSLA sem er bara gott mál, nóg að gera hjá kallinnum, er ekkert að koma heim á næstunni. :)

Nú get ég loksins farið að elda mér almennilegar máltíðir, nú þegar maður er farinn að vinna eins og hundur.
Okay..ég er ekki í krampa kasti hérna.
SvaraEyðaMore later.
Hey mr. Trash,
SvaraEyðaVissi að það myndi rætast úr litla kútnum einhvern tímann.
Góða lukku með þetta nýja starf þitt.
Býst ekki við að hitta þig aftur þar sem þú virðist búinn að settle niður og kafi í vinnu.
kv,
Garðar
jah...ég er allvega á kafi í einhverju hérna...
SvaraEyðaEndilega kíktu samt í heimsókn svo að ég geti sagst vera upptekinn ef einhver hringir og biður mig um að vinna :)
Heh...Gummi bara gegnósa af workethic.
SvaraEyðaEn ég er búinn að jafna mig á mental myndinni sem ég fékk af þér. Á leið í vinnuna með bros á vör og not a worry in the world, raulandi "It's a wonderful world" lagið.
Svo mætirðu á svæðið og tekið um báða fæturnar á þér og dýft ofan í skít.
he he..nú byrja ég að hlæja aftur.
ye bastard...
SvaraEyðayou keep on keeping on.
SvaraEyðaWork it like a poilaroid picture
Takk Björgvin, ef það væri nú bara til Dominos hérna...
SvaraEyðahmmm... ég myndi ekki kalla það að vinna eins og hundur að láta sjá sig í sorpinu einn dag og fara svo með tárin í augunum og snökta:"ég vill ekki fara aftur þangað, ég varð skítugur" En þú stendur þig samt vel kallinn minn! Við skulum bara vona að botninum á þínum vinnuferli sé náð...
SvaraEyðaViggó
Hefurðu séð hunda vinna? Þeir sleikja á sér klofið...
SvaraEyðaHef samt lúmskan grun um að botninum séð ekki náð! Ótrúlega bjartsýnn hvað það varðar...