Ég hef Vítisenglana sterklega grunaða um að hafa staðið á bakvið þetta hræðilega mál. Enda hringdi löggan í mig og krafðist upplýsinga! Þeir vildu fá að vita hvort ég hefði tekið eftir hvaðan þeir væru. "Englandi!" sagði ég stoltur og hrósaði sjálfum mér fyrir ótrúlega eftirtektarsemi.
"Já, við vissum það nú reyndar. Við vorum að velta fyrir okkur hvort að þú vissir hvaða borg í Englandi þeir kæmu frá. Það stendur yfirleitt hægra meginn, í brjóstkassahæð, á jökkunum þeirra. Tókstu nokkuð líka eftir því hvort að einhverjir þeirra væru með hauskúpu með vængjum á jökkunum?"
"(Sko, ef ég á að vera fullkomlega hreinskilinn við þig, þá er staðreyndin sú að þegar sjö síðhærðir risar, ýmist fullir eða uppdópaðir standa fyrir framan mig í Hells Angels jökkum þá fer öll mín athygli og orka í að pissa ekki í brækurnar. Þannig að) nei, ég tók ekki eftir bæjarnöfnum eða hauskúpum með vængjum á. En ég tók eftir því að það stóð MC í litlum stöfum, neðst í hægra horninu, aftan á jökkunum."
Hann þakkaði mér fyrir hjálpina, sem ég býst við að hafi verið afskaplega lítil.

Ég og Sigga á fræknum flótta...
Smá vidbætingur:
Ég mæli eindregid med ad fólk flykkist á heimasíduna hans Gardars og taki thátt í ljósmyndakeppni(og thegar ég segi "taka thátt" thá meina ég náttúrulega "kjósa hans mynd ellegar brenna í helvíti").
Thar fyrir nedan er líka mjög gott vídjó af engum ödrum en mér í vinnunni!
Ég get alveg staðfest það að vítisenglarnir eru toppgaurar.
SvaraEyðaBjó í sömu götu og þeir og það var bara ein skotáras á bygginguna í þessa 9 mánuði sem ég bjó þar.
eda gedsjúklingar?!
SvaraEyðajá, sammála... ég hef nú búið í 27 ár án þess að það sé skotárás einhvers staðar nálægt mér!
SvaraEyðaHefur bara nokkur þorað að skjóta með þá nærri - kannski meira fyrir hnífa líka! Oh my god. Þú ert greinilega mjög hugaður maður frændi. Gangi þér vel - vonandi færðu fínt borðskraut í stað graskersins þó ég skilji að það hljóti að skilja eftir sig óbætanlegt skarð.
SvaraEyðaTakk kærlega fyrir viðbótina Gummi!
SvaraEyðaTil að endurgreiða þér færðu slóð til að hlaða niður gummi laginu þínu
http://212.30.203.209/bgud/Gummibear%20-%20Itt%20van%20gumimaci.mp3
Detti mér allar daudar...Inga bara komin! Gaman ad thví :D Enn ein sönnun fyrir thví ad madur hefur ekki hugmynd um hver les thetta rugl eiginlega, ekki ad thad breyti einhverju, bara gaman ad vita...
SvaraEyðaTakka Gazzi!