sunnudagur, október 23, 2005

Skál!

Jei! Kominn með netið í íbúðina og allt að gerast, íslenskir stafir og ég veit ekki hvað og hvað.
Nú fer atvinnuleit að hefjast af alvöru, og bloggið kannski líka, sjáum til. Var með pókerkvöld á föstudaginn og til þess að hafa almennilegt pókerkvöld þarf náttúrulega nóg af bjór og nokkra vindla. Til þess að redda því þá var manni ráðlagt að fara rétt yfir "grensuna" og versla þar. Að fara rétt yfir "grensuna" þýðir raunverulega það! Við fórum svona cirka 100 metra yfir landamærin til þýskalands og þar er búð sem að heitir scandinavian center eða eitthvað álíka og þar er bjórinn svo ódýr að ég byrjaði náttúrulega að slefa hömlulaust og tapaði áttum hreinlega. Í stuttu máli sagt keyptum við 10 kassa af bjór, 2 kassa af kóki, Gajol flösku og eitthvað annað sem að ég man ekki hvað er(eða hvar það eiginlega er) og allt þetta kostaði 10.092 íslenskar krónur! Þið lásuð rétt! Svipað mikið og þið á fróni borgið fyrir 1 kassa af bjór og eina flösku af Gajoli eða eitthvað álíka....synd. Ég legg til að þið flytjið öll hingað og við fáum okkur öl eða tvo eins og ég gerði á hádegi í dag þegar fótboltaliðið sem að ég er í vann leikinn sinn í dag 6 - 2 og ég skoraði ekkert sjálfsmark. Það er nebbla einhver siður hjá þeim að þjálfarinn(við erum reyndar með tvo) koma með kassa af bjór á leiki og svo er skálað á eftir, annað hvort til að fagna eða drekkja sorgum sínum. Ég hef einu sinni þurft að drekkja sorgum mínum eftir að ég kom hingað, 4 - 3 ósigur á útivelli, súrt. En þið verðið að hafa mig afsökuð í augnablik, ég þarf að fara að faðma allan bjórinn minn, til að láta þá vita að einginn verður skilinn útundann.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Gajol?

A. þýðandi

þriðjudagur, október 25, 2005  
Blogger Gummi said...

já þetta er einhver tegund af skotum, svona eins og topas skotinn og það rugl....allt eins eiginlega.

miðvikudagur, október 26, 2005  

Skrifa ummæli

<< Home