föstudagur, ágúst 25, 2006

Jæja...



Ekkert gerst hér lengi. Tengdó voru nebblega í heimsókn. Það var snilld, eins og vera í fríi bara!
Við fórum víða. Byrjuðum á að keyra til Flensborgar, sem er í Þýskalandi fyrir þá sem ekki vita, og fundum þar eitthvað verslunarhúsnæði. Meginmarkmið ferðarinnar,
fyrir utan það að nýta tækifærið og gera sig að fífli hinumegin við landamærin, var að nýta það að maður væri á bíl og kaupa nokkra öllara til að taka með til Middelfartvej. Fundum þessa fínu kerru sem að leit út fyrir að geta haldið nokkrum bjórum.
Skemmst frá því að segja að við versluðum okkur 11 Carlsberg kassa, 2 Coke kassa og 1 Seven up kassa. Allt þetta kostaði 1043 DKR. sem ég held að sé um 12.516 ISKR. Má vel vera að þetta séu litlar dósir en fjandinn hafi það ef að þetta sé ekki bara fínn díll.


Ef að engann langar í heimsókn núna, ef ekki bara flytja hingað, þá veit ég ekki hvað.

Daginn eftir öl ferðina var einhver svona síðsumarhátíð hjá spítalanum þar sem við spiluðum fótbolta og brennó eða eitthvað álíka.
Ég var í fótboltanum, stend þarna aftast, var fólgið það gríðarlega mikilvæga hlutverk að vera sweeper, the last line of defense! Ekki mikið að gera hjá mér og kannski bara just as well þar sem þetta eru nú danir var náttúrlega byrjað um 15 leytið og 2 bjórar fyrir fyrsta leik og svo eitt stykki eftir hvern leik.
Maður var orðinn helvíti valtur í síðasta leiknum sem að við unnum btw 9 - 0! Massa gaman. Fengum líka bikar fyrir að valta hreinlega yfir öll hin liðin líka og vinna þar með mótið! Um kvöldið var svo grillað og haldið áfram að drekka.


Danirnir láta hana Siggu mína náttúrulega ekki í friði!


Enda bölvuð kynbomba þar á ferð.

Ég og Sigga fórum heim í kringum eittleytið. Það tekur um 10 mín. að hjóla heim frá spítalanum. Við komum heim þegar klukkan var að verða 02:00....ég var orðinn svo sósuölvaður að ég hélt engum balance! Eins og kom svo í ljós er bara furðu mikilvægt að hafa jafnvægi þegar maður er að hjóla. Í þau skipti sem að ég hjólaði ekki beint út í runna, lá ég á malbikinu, undir hjólinu, næstum búinn að kyrkja mig á keðjunni sem var að sjálfsögðu dottin af! Ég íhugaði á tímabili að teyma hjólið bara heim en svo sá ég fiðrildi og gleymdi algjörlega hvað ég var að hugsa þannig að ég skellti mér á hjólið aftur og aftur og aftur og aftur....nú er framdekkið mitt kengbeyglað og það heyrist fullt af einhverjum furðulegum hljóðum þegar ég hjóla...



Laugardagurinn kom með tilheyrandi þynnku og eymslum eftir bylturnar. Það náði ekki að renna af mér áður en það rann upp fyrir mér að ég átti að mæta í fótboltaleik með íslendingaliðinu eftir 3 tíma!
Notaði þessa þrjá tíma til að bryðja íbúfen í gríð og erg ásamt því að sturt niður 4 kókdósum og senda Siggu og tengdó á Skagen, sem er nyrðsti hluti danmerkur...
Mæti eiturþunnur í leikinn og spila allar 90 mín.. Áður en yfir lauk hafði báðum liðum tekist að skora 2 mörk og markmaðurinn okkar endaði á bráðamóttökunni.
Hann kom hlaupandi út, renndi sér á móti sóknarmanni andstæðinganna sem að reyndi að koma í veg fyrir svaðalegan árekstur með því að hoppa yfir hann. Það tókst ekki betur en svo að hann náði að festa einn takkann í nefinu á markmanninum okkar og svoleiðis gjörsamlega reif það upp eftir öllu! Ég hef aldrei á ævinni séð manni blæða svona mikið OG ÉG VINN Á SJÚKRAHÚSI!
Nú, eftir leikinn var náttúrulega partý, sem að yours truly mætti að sjálfsögðu í. Helþunnur ennþá, varla mættur inn um dyrnar og þá er drykkjuleikur og svo annar eftir hann og svo annar eftir hann. Um tvö leytið ákvað ég að fara heim. Upp á hjólið og stímdi niður helvíti góða brekku. Kemur í ljós að það var ekkert auðveldara að hjóla fullur þetta kvöldið, tala nú ekki um þegar framhjólið er kengbeyglað! En einhvern veginn tókst mér að róna mér heim...


(Sunnu)Daginn eftir vaknaði ég ferskur sem ég veit ekki hvað og rauk niður á local pöbbin til að horfa á Manchester rúlla yfir Fulham! Það var ekki til að hægja á drykkjunni. Svo var líka hellidemba úti þannig að ekki gat ég farið heim...varð náttúrulega að horfa á Chelsea leikinn líka....og ekki gat ég bara setið þarna og gert ekki neitt þannig að ég sötraði bara meiri bjór!



Ég man ekkert hvað við gerðum á mánudaginn þannig að ég setti bara inn þessa mynd af Corvettu sem að ég rakst á í Þýskalandi. Hefði líka skellt inn mynd af mér við hliðana slefandi, eins og ég var, en það voru bara allir búnir að stinga mig af.

Á þriðjudaginn var planið að keyra strandveginn til KöPen með stoppum í hinum og þessum pleisum. Slagelse var helst á vörum manna. Þegar við komum til KöPen ætluðu tengdó bara að finna sér hótel því að flugið var daginn eftir. Ábyggilega í kringum ein milljón hótela þarna í þessari skítugu borg og mig langar að taka það fram að það var þriðjudagur. Ekki eitt einasta herbergi laust!
Þannig að það var bara stoppað í næstu sjoppu, keypt kippa og brunað aftur til Odense.
Mikið gaman, mikið stuð!
Takk fyrir komuna og borinn!

13 Comments:

Blogger AM said...

Og hvernig heldurðu svo að lifrin í þér sé?

sunnudagur, ágúst 27, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

Hvernig ertu þegar tengdó er ekki á eftirlitsferð???

sunnudagur, ágúst 27, 2006  
Blogger Gummi said...

Lifur? Gagnslaust drasl. Skildi hana eftir við dyrnar þegar ég gekk fyrst inn í ríkið.

Ég er að vinna í mynd sem mun hugsanlega útskýra það betur en ég gæti nokkurn tímann sagt frá....

sunnudagur, ágúst 27, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

hehe snilld :)

mánudagur, ágúst 28, 2006  
Blogger Hlynur Gauti Sigurðsson said...

Verð að fara að kíkja í heimsókn.

þriðjudagur, ágúst 29, 2006  
Blogger Gummi said...

Ég held það bara.

þriðjudagur, ágúst 29, 2006  
Blogger AM said...

Snilldarmyndir by the way.

laugardagur, september 02, 2006  
Blogger Gummi said...

Takk,takk.

laugardagur, september 02, 2006  
Blogger Gummi said...

Eftir á að hyggja sé ég að ég tók bara tvær myndir: Corvettuna og danann að reyna við Siggu.



Snilldarmyndir, Sigga mín :D

laugardagur, september 02, 2006  
Blogger AM said...

Snilldartexti, by the way. Ekki ætlarðu að segja að einhver annar hafi skrifað hann?

laugardagur, september 02, 2006  
Blogger Gummi said...

This is pure 47.

laugardagur, september 02, 2006  
Blogger Garðar said...

já, maður verður að flýta sér núna í heimsókn áður en bjórinn klárast... humm... ætli það sé ekki fyrir næsta sunnudag. Jæja, efast um að ég nái því en svo gæti þó verið að ég þurfi að fljúga til danmerkur en ekki sverige eins og planið var og gæti verið að maður kíkki yfir stórabeltið til þín í leiðinni.

Sjáum til, veit ekki alveg hvenær ég kemst af stað sökum íss, ísbjarna og náhvala.

sunnudagur, september 03, 2006  
Blogger Gummi said...

Endilega! Ég verð að vísu í KöPen um næstu helgi.

sunnudagur, september 03, 2006  

Skrifa ummæli

<< Home