miðvikudagur, nóvember 01, 2006

Morð á Grand!

Það er búið að henda graskerinu. Henda því bara eins og skítugri, einnota tusku. Mikil sorg. Þetta var vinur minn. Eini sem ég gat talað við á nóttunni. Hann var alltaf sammála mér. Ég skipti um kerti í honum. Hreinsaði kertavax sem hafði lekið í botninn á honum. Við gerðum óspart grín að gestum sem komu inn um dyrnar. Ó, hvað við hlógum...góðar stundir.

Ég hef Vítisenglana sterklega grunaða um að hafa staðið á bakvið þetta hræðilega mál. Enda hringdi löggan í mig og krafðist upplýsinga! Þeir vildu fá að vita hvort ég hefði tekið eftir hvaðan þeir væru. "Englandi!" sagði ég stoltur og hrósaði sjálfum mér fyrir ótrúlega eftirtektarsemi.

"Já, við vissum það nú reyndar. Við vorum að velta fyrir okkur hvort að þú vissir hvaða borg í Englandi þeir kæmu frá. Það stendur yfirleitt hægra meginn, í brjóstkassahæð, á jökkunum þeirra. Tókstu nokkuð líka eftir því hvort að einhverjir þeirra væru með hauskúpu með vængjum á jökkunum?"

"(Sko, ef ég á að vera fullkomlega hreinskilinn við þig, þá er staðreyndin sú að þegar sjö síðhærðir risar, ýmist fullir eða uppdópaðir standa fyrir framan mig í Hells Angels jökkum þá fer öll mín athygli og orka í að pissa ekki í brækurnar. Þannig að) nei, ég tók ekki eftir bæjarnöfnum eða hauskúpum með vængjum á. En ég tók eftir því að það stóð MC í litlum stöfum, neðst í hægra horninu, aftan á jökkunum."

Hann þakkaði mér fyrir hjálpina, sem ég býst við að hafi verið afskaplega lítil.


Ég og Sigga á fræknum flótta...

Smá vidbætingur:
Ég mæli eindregid med ad fólk flykkist á heimasíduna hans Gardars og taki thátt í ljósmyndakeppni(og thegar ég segi "taka thátt" thá meina ég náttúrulega "kjósa hans mynd ellegar brenna í helvíti").
Thar fyrir nedan er líka mjög gott vídjó af engum ödrum en mér í vinnunni!

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ég get alveg staðfest það að vítisenglarnir eru toppgaurar.

Bjó í sömu götu og þeir og það var bara ein skotáras á bygginguna í þessa 9 mánuði sem ég bjó þar.

miðvikudagur, nóvember 01, 2006  
Blogger Gummi said...

eda gedsjúklingar?!

miðvikudagur, nóvember 01, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

já, sammála... ég hef nú búið í 27 ár án þess að það sé skotárás einhvers staðar nálægt mér!

fimmtudagur, nóvember 02, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

Hefur bara nokkur þorað að skjóta með þá nærri - kannski meira fyrir hnífa líka! Oh my god. Þú ert greinilega mjög hugaður maður frændi. Gangi þér vel - vonandi færðu fínt borðskraut í stað graskersins þó ég skilji að það hljóti að skilja eftir sig óbætanlegt skarð.

fimmtudagur, nóvember 02, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

Takk kærlega fyrir viðbótina Gummi!

Til að endurgreiða þér færðu slóð til að hlaða niður gummi laginu þínu

http://212.30.203.209/bgud/Gummibear%20-%20Itt%20van%20gumimaci.mp3

fimmtudagur, nóvember 02, 2006  
Blogger Gummi said...

Detti mér allar daudar...Inga bara komin! Gaman ad thví :D Enn ein sönnun fyrir thví ad madur hefur ekki hugmynd um hver les thetta rugl eiginlega, ekki ad thad breyti einhverju, bara gaman ad vita...

Takka Gazzi!

fimmtudagur, nóvember 02, 2006  

Skrifa ummæli

<< Home