fimmtudagur, desember 08, 2005

Ég hata...

..frunsur! Er núna að rækta eina stærstu frunsu sem ég hef á ævinni séð!
Ég hef alltaf fengið frunsu tvisvar á ári: Í mars og aftur í nóvember. Eiginlega hættur að pirra mig yfir þessu. En núna hef ég rétt til að vera massa pirraður! Ég fékk helvítis frunsuna í nóvember og eins og glöggir lesendur þessa fréttblaðs hafa kannski tekið eftir, þá er DESEMBER NÚNA!!! Brjálaður!! Ég er á brún örvæntingar hérna...liggur við að ég finni mér hómópata og leyfi honum að gera eitthvað woodoo drasl á mér. Hef sama sem enga trú á náttúrulækningum en eins og ég sagði þá er ég á brún örvæntingar!
Fyrst ég er svona pirraður þá langar mig að deila með ykkur "my hate list":

Ég hata...:

..frunsur
..jackie chan
..samuel l. jackson
..lélega tónlist(það er svo mikið af þessu drasli að ég fer ekki nánar út í það)
..lán
..kirkjuklukkuna sem er hérna fyrir utan og fer í gang klukkan 8 á morgnana og hamast í nákvæmlega 2oghálfa mínútu. Hún spilar ekki einu sinni lag eða segir manni hvað klukkan er. Bara hamast non-stop!!
..óskipulag(N.B. rusl getur verið skipulagt)
..dót sem virkar ekki
..óstundvísi
..allt þetta reykingarbann á íslandi(barnalegt að banna fólki að gera eitthvað sem er ekki einu sinni ólöglegt)
..blóm sem vilja ekki einu sinni REYNA að lifa í íbúðinni minni
..fólk sem starir á frunsuna mína
..rispaða DVD diska
..rigningu um jólin
..stærðfræði, hún er bara rugl þegar maður er kominn lengra en plús, mínus, deilingu og margföldun
..þegar ég man ekki lengur hvað ég hata!

Jæja þetta var ágætt, lofta aðeins út. Djöfull hata ég frunsur!



Ég væri frekar til í að lenda í þessu en það sem ég er með framan í mér þessa dagana.

10 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Rosalega ertu pirraður!
Hómópatar iðka ekki woodoo. Ekki gleyma náttúrulega lyfinu "Tea Tree Oil" sem frómur maður benti mér á sem "það eina sem virkaði á frunsur".
Getum við hist eitthvað um jólin? Spilað með nördunum eða eitthvað?

fimmtudagur, desember 08, 2005  
Blogger Garðar said...

veit í rauninni ekki einu sinni hvernig frunsa lítur út verð ég að segja...

það eina sem ég hef séð sem á víst að tengjast frunsu er hvít klessa á vörunni. Grunar samt að það sé ekki sjálf frunsan.

Með haturlistann í huga...

Þú hatar...??? (afhverju)

..samuel l. jackson

humm... þetta er það eina sem ég skil ekki afhverju.

fimmtudagur, desember 08, 2005  
Blogger Gummi said...

Já við hljótum að geta hist eitthvað, reynum það bara! Ég er að nota tea tree oil...í þetta skiptið frá ástralíu...kemur samt ekki í veg fyrir að ég er með massaívan pirring og ógeðslegan gröft í tvo daga og bólgu eða sár þarna í yfir viku.

Það að ég hati Samuel L. Jackson er eitthvað sem að gæti útskýrt fyrir þér en nenni ekki. Ég bara hata hann...leiðinlegur leikari svo eitt sé nefnt.

fimmtudagur, desember 08, 2005  
Blogger Sveinsson said...

Þetta er ógeðslegasta mynd sem ég hef séð lengi. Er maðurinn alvarlega geðveikur?

fimmtudagur, desember 08, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Sterkur listi hjá þér. Fullkomlega sammála þér með Sammuel L. Jackson.
Hann er bara money grapping whore og lélegur leikari. Annars ertu á leiðinni á klakann yfir jólin?

föstudagur, desember 09, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Af hverju er ég ekki hissa á að Hemmi hafi ekki fattað að þú sért á leiðinni heim og við ætlum einmitt að reyna að hittast...! Hemmi með hattinn.
Hvenær ferðu til baka?
Herra Björgvin - ég get glatt þig með því að ég fékk mína fyrstu frunsu í vor, þá orðin 32 ára og gott betur ef ég man rétt. Það er því ekki öll nótt úti enn.
Þakka grafískar lýsingar á sjúkdómsáastandinu, mér líður miklu betur núna.

föstudagur, desember 09, 2005  
Blogger Sveinsson said...

Ertu bara 32 ára? Hélt þú værir komin vel yfir fertugt. Oh well...live and learn.

föstudagur, desember 09, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Muohohohohoho!
Bíddu bara.

föstudagur, desember 09, 2005  
Blogger Gummi said...

Ég fer aftur út 6. jan.
Daði, að þú skulir vera einhleypur with your way of women....

sem minnir mig á það, Tinna: Fyrirgefðu, ég gleymdi afmælinu þínu! Hef enga afsökun.

Bíddu bara þangað til að þú kyssir ranga stelpu, Björgvin....eða rangann stað á stelpu! :D

föstudagur, desember 09, 2005  
Blogger Gummi said...

Guð hefur mig að óttast ef ég fæ aftur svona stóra frunsu!!

laugardagur, desember 10, 2005  

Skrifa ummæli

<< Home