mánudagur, desember 05, 2005

Zoidberg

"For one beutiful evening I knew how it felt to be a grandmother."
..snillingur.

Ekki mikið í gangi hérna þessa stundina, það var ekki hringt í mig í dag en á morgun er nýr dagur, held ég.
Við Sigga fórum út að borða á laugardaginn, eftir að hafa horft á manchester vinna. My main man Giggs loksins kominn aftur. Gaman að því. Það voru að sjálfsögðu teigaðir nokkrir öllarar yfir leiknum og matnum. Hefði átt að sleppa síðasta bjórnum því að ég var illa þunnur á sunnudaginn. Ekki kannski mikil frétt að ég hafi verið þunnur en það gerðist samt. Sigga verður aldrei þunn, heppin! Væri til í að prófa það reglulega. Kannski í næsta lífi.

Ég hef nákvæmlega ekkert að segja og ef þú ert ennþá að lesa þetta þá mæli ég með því að þú hættir núna! Ég er allavega hættur að skrifa...núna!



Greinilega engin takmörk fyrir því hvað fólk getur verið vitlaust.

3 Comments:

Blogger Garðar said...

ég hætti að lesa rétt áður en þú hættir að skrifa...

þriðjudagur, desember 06, 2005  
Blogger Sveinsson said...

Þetta er skemmtilegasta bloggfærsla sem ég hef aldrei lesið.

þriðjudagur, desember 06, 2005  
Blogger Gummi said...

Ég reyndi að vara ykkur við!

þriðjudagur, desember 06, 2005  

Skrifa ummæli

<< Home