miðvikudagur, júní 21, 2006

1 2 3, testing....

Ég held ég viti hver ég er. Ég er enginn. Ég er stórt feitt núll. Ég er reyndar frekar lítið mjótt núll. Svo lítið að ég sést ekki einu sinni.
Ég er ekki í neinni tilvistarkrísu eða neitt svoleiðis. Ég komst að þessu þegar ég var í vinnunni um daginn. Var að labba í átt að sjálfvirkri hurð sem er með nema. Þessi nemi, nemur venjulegt fólk og segir hurðinni að opnast. Þegar ég kom askvaðandi eins og hver önnur manneskja, að ég hélt, nam neminn mig ekki og ég labba face first inn í hurðina. Þvílíkt og annað eins diss hefur sjaldan sést. Ég náði loksins að fá nemann til að samþykkja mig sem manneskju með því að fá spassakast fyrir framann hann, sveiflandi limum eins og Ágústa Johnson á morgnana.
Hitt er að bloggið mitt virðist vera horfið, ég sé allavegana ekki rassgat, þannig að eins og áður sagði: 1 2 3, testing!!!!!!!


Eddie alltaf svalur.

Hvað eru svo mörg ég í því?

9 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hey... bloggið er ekki horfið, en þetta er allt ok... ég hef heldur ekki séð RASSGAT á blogginu þínu...

miðvikudagur, júní 21, 2006  
Blogger AM said...

Þetta gefur þér mjög góða möguleika á að verða ofurhetja. Bara að muna eftir hurðinni.

miðvikudagur, júní 21, 2006  
Blogger Gummi said...

Hah! Þarna ertu litli skrattakollur! Veraldarvefurinn sko...

Ekki rassgat? Þú misstir greinilega af færslunni "Glapræði - föstudagur" (15. maí, 2006)

Ég er náttúrulega borderline ofurhetja bara með því að lifa lífinu eðlilega án kokteilsósu hérna!

fimmtudagur, júní 22, 2006  
Blogger V said...

Þú hefur alltaf verið hetja í mínum augum. Það sem hefur bara vantað til er eitthvað catchy nafn.
Ég er með nokkrar uppástungur:
Kapteinn Kokteilsósa
MidgetMan
Agent 47 1/2

föstudagur, júní 23, 2006  
Blogger Gummi said...

Midget Man 47 kannski bara?

föstudagur, júní 23, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

ummm... NEI las þessa færslu og sá myndina, en barasta EKKERT RASSGAT... bara spýtu... Meir svona huglægt fyrir þig held ég...

föstudagur, júní 23, 2006  
Blogger Gummi said...

Hver ert þú?

laugardagur, júní 24, 2006  
Blogger AM said...

Hvar ertu? Hvaða færsluleysi er þetta?

sunnudagur, júní 25, 2006  
Blogger Gummi said...

Ég er önnum troðinn..............................................................................................aldrei þessu vant.

mánudagur, júní 26, 2006  

Skrifa ummæli

<< Home