þriðjudagur, desember 20, 2005

Vældi eins og grís!

Þegar ég las þetta á vísindavefnum, grét ég svo mikið úr hlátri að lá við ofþornun!

"Spyrjandi Auður Hreinsdóttir

Spurning Hver er besta leiðin til að fá foreldra til að hlýða sér?

Svar


Á nýafstöðnu ársþingi íslenskra barna var þetta vandamál brotið til mergjar. Ljóst var af þeim reynslusögum sem sagðar voru að hlýðni foreldra er því miður mjög ábótavant hér á landi. Steinunn úr Grafarvoginum er til dæmis látin taka sjálf til í herberginu sínu, og það tvisvar á ári, og Palli litli á Ísafirði fær ekki nammi nema einu sinni í viku. Pabbi Andrésar á Eskifirði harðneitar að leysa fyrir hann heimaverkefnin og mamma Gunnu á Stokkseyri gefur henni bara tíuþúsundkall á mánuði í vasapening. Þarna er svo sannarlega um foreldravandamál að ræða og full þörf á róttækri meðferð fyrir foreldrana. Þeir foreldrar sem hér voru nefndir vildu því miður ekki tjá sig við starfsfólk Vísindavefsins um málið.

Fram kom að ekki ríkti einhugur um hvaða aðferðir væru árangursríkastar og virtist talsverð fylgni milli aldurs og skoðana á þessu máli. Þannig töldu flestir tveggja ára þátttakendur að heppilegast væri að leggjast á gólfið, baða út öllum öngum og öskra af öllum lífs og sálar kröftum. 13 ára þátttakendur voru hins vegar hrifnari af í-fýlu-inni-í-herbergi-aðferðinni sem og því að telja viðkomandi foreldrum trú um að þeir væru ströngustu foreldrarnir í hverfinu og að allir hinir krakkarnir mættu gera miklu meira.

Á þinginu var rætt um möguleikann á sérstökum hlýðninámskeiðum fyrir foreldra. Meðal annars var samþykkt tillaga um að fara út í viðræður um samstarf um námskeiðahald við Hundaræktarfélagið. Einnig þótti líklegt að atvinnurekendur gætu haft áhuga á einhvers konar samstarfi, enda eiga börn og atvinnurekendur augljóslega sameiginlegra hagsmuna að gæta í þessum efnum. Til dæmis var talað um að hrinda af stað átaki með slagorðinu "Hlýðnir foreldrar, undirgefnir starfsmenn."

Börn á Íslandi leita nú að fyrirtæki sem vill styrkja gerð límmiðabókar fyrir foreldra. Hugmyndin er sú að foreldrar séu verðlaunaðir með límmiðum fyrir góða hegðun og límmiðarnir verði svo færðir inn í sérstaka bók. Foreldrar geta svo keppt hver við annan um að hafa sem flesta límmiða, jafnvel væri hægt að halda Íslandsmeistaramót í límmiðasöfnun og einnig gætu fjölmennir vinnustaðir birt mánaðarlegt yfirlit yfir þá starfsmenn sem hefðu flesta límmiða.

Fulltrúar úr ungbarnahópi og smábarnahópi ársþingsins lýstu þó yfir efasemdum um þessa aðferð þar sem þeir sögðust ekki kunna að telja og sáu því fram á að lenda í vandræðum við að deila út límmiðunum. Þessir hópar voru hrifnari af refsingum fyrir óhlýðni en verðlaunum fyrir hlýðni og reiknuðu með að halda áfram að beita hefðbundnum aðferðum á borð við að æla framan í foreldra og pissa eða kúka á gólfið."

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

ahemm...eru einhver tengsl milli þess að þú leitaðir þetta uppi og þessa paradísarmissis sem getið er um áður (hangiketsins)?
Ertu búinn að velja aðferð?

miðvikudagur, desember 21, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Og af hverju kallaðir þú þig Auði Hreinsdóttur? Einhver tengsl við hreindýrið?

miðvikudagur, desember 21, 2005  
Blogger Gummi said...

Þú sérð svo í gegnum mig...oh well..best að come clean, eins og þeir segja. Var ekki viss um að hreindýratengslin væru nógu lúmsk hjá mér og ég hef ákveðið að "leggjast á gólfið, baða út öllum öngum og öskra af öllum lífs og sálar kröftum." Mér finnst líklegast að þetta komi til með að virka...

miðvikudagur, desember 21, 2005  
Blogger Gummi said...

..svo ef ekkert gengur, þá er náttúruleg alltaf hægt að pissa og kúka soldið á gólfið!

miðvikudagur, desember 21, 2005  
Blogger Sveinsson said...

Been there. Done that.

miðvikudagur, desember 21, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Lol! Spurningin mín!!! Hvað eru allir annars að bulla um hreindýr??? Sendi þessa spurningu fyrir mörgum árum til vísindavefsins og var fyrst að lesa svarið núna!!! Algjör snilllld! Kv. Auja

þriðjudagur, júlí 15, 2008  

Skrifa ummæli

<< Home